Inkasso og Momentum sameinast
Hluthafar Inkasso ehf. og Momentum ehf. hafa náð samkomulagi um sameiningu félaganna og kemur hún til framkvæmda síðar í þessum mánuði. Þar með verður til afar öflugt og framsækið fjártæknifyrirtæki á greiðslu- og innheimtumarkaði, sem mun eins og fyrirrennarar þess, sinna frum- og milliinnheimtu fyrir viðskiptavini sína, og lögfræðiinnheimtu fyrir milligöngu Gjaldheimtunnar. Engar breytingar verði að svo stöddu fyrir viðskiptavini en fulltrúar hins sameinaða félags muni vera í sambandi við viðskiptavini þegar sameiningin kemur til framkvæmda á næstu vikum og kynna nánar starfsemi sameinaðs félags.
Ert þú í greiðsluvanda?
Allir geta lent í tímabundum greiðsluvanda og þá er mikilvægt að bregðast strax við og leita sér ráðgjafar.
Inkasso er Framúrskarandi
Inkasso eitt af 2% fyrirtækja á Íslandi sem valin voru Framúrskarandi hjá Creditinfo.
Velkomin í Festu - Inkasso gengur stolt til liðs við Festu
Inkasso gekk til liðs við Festu - Félags um samfélagslegaábyrgð í sumar. Bætist Inkasso í ört stækkandi hóp fyrirtækja sem taka þessi mikilvægu mál alvarlega.